Fotbolti.net
06.03.08 - 21:50
Hafliði Breiðfjörð

Javier Clemente tekur við Murcia (Staðfest)

Javier Clemente.

Javier Clemente.

Canon

Mynd: Getty Images

Javier Clemente fyrrum landsliðsþjálfari Spánverja hefur verið ráðinn nýr þjálfari Real Murcia í spænsku deildinni í kjölfar þess að féalgið rak Lucas Alcaraz í dag. Félagið staðfesti þessi tíðindi á vefsíðu sinni nú í kvöld.
Clemente var við það að verða landsliðsþjálfari Íran í síðasta mánuði en ekkert varð úr því og þess vegna gat hann tekið við Murcia sem eru í næst neðsta sæti spænsku deildarinnar, sex stigum frá því að vera fyrir ofan fallsæti. Þeir hafa aðeins unnið fimm leiki af 26 síðan þeir komust upp í deildina á síðustu leiktíð.

,,Það tekur mig sárt að taka svona ákvarðanir sérstaklega þegar Alcaraz hefur lagt svona hart að sér, en það eru úrslitin sem telja," sagði Jesus Samper forseti Murcia á fréttamannafundi. Þetta var önnur leiktíð Alcaraz við stjórnvölinn.

Clemente sem er 57 ára gamall fær samning út leiktíðina og verður kynntur formlega á morgun.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.