06.03.09 - 07:49
Hafliði Breiðfjörð
Jökull Elísabetarson í Víking (Staðfest)

Jökull í leik með Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökull í leik með Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar tilkynntu í nótt að miðjumaðurinn Jökull I. Elísabetarson sé genginn í raðir félagsins en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Jökull er sem stendur í Bandaríkjunum en mun koma til æfinga hjá Víkingi í apríl og leika með liðinu í 1. deildinni á komandi tímabili. Hann lék áður með Víkingi í Landsbankadeildinni tímabilin 2006 og 2007, alls tuttugu og níu leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark.
Jökull er uppalinn KR-ingur og lék þar alltaf sem hægri bakvörður. Magnús Gylfason sem fékk hann í raðir Víkings á sínum tíma lét Jökul spila á miðjuna þar sem hannstóð sig vel og var lykilmaður í liðinu.
Hann fór svo frá þeim á miðju sumri 2007 til náms í Bandaríkjunum og ákvað að leika ekki hér á landi síðasta sumar. Hann var svo í nýliðavalinu fyrir bandrísku MLS deildina í byrjun árs og var valinn af Chicago Fire.
Hann valdi þó að semja ekki við félagið og halda heldur heim á leið og leika hér á landi næsta sumar. Hann var svo fljótur að ganga frá samningi við Víking að nýju.

Heimild: Vikingur.net