Fotbolti.net
06.03.09 - 15:23
Hafliði Breiðfjörð

Ástralskur framherji í Víking (Staðfest)

Milos Glogovac framlengir til 2010

Frá undirskriftinni við leikmennina.

Frá undirskriftinni við leikmennina.

Canon

Mynd: Víkingur.net

Víkingar eru á fullu með pennann þessa dagana og hafa nú fengið ástralska framherjann Lewis Ehrlich til liðs við sig auk þess sem félagið hefur gert samning við varnarmanninn Milos Glogovac út tímabilið 2010.
Lewis er 22 ára gamall framherji sem hefur leikið síðustu tvö ár með Northeastern háskólanum í Boston í Bandaríkjunum. Á undan því lék hann í áströlsku fyrstu deildinni. Hann kom einnig til æfinga hjá Víkingi í fyrra en gekk þá ekki frá samningi.

Hann lék á dögunum æfingaleik gegn Aftureldingu og hefur verið að æfa með liðinu að undanförnu. Hann er hér á landi þar sem hann er í námi í Háskóla Íslands.

Milos Glogovac verður 29 ára gamall á árinu. Hann kom til Víkings fyrir tímabilið 2005 og hefur leikið 73 leiki með liðinu í deild og bikar og skorað í þeim eitt mark.

Heimild: Víkingur.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.