Fotbolti.net
06.03.09 - 16:07
Magnús Már Einarsson

Halldór Jón í ÍA (Staðfest)

Halldór Jón í ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Ómar Bragi Stefánsson

Halldór Jón Sigurðsson hefur gengið til liðs við ÍA en hann kemur til félagsins frá Tindastól.
Þessi 25 ára gamli miðjumaður þekkir til hjá ÍA því hann lék þar á sínum yngri árum og varð meðal annars Íslandsmeistari í öðrum flokki árið 2002.

Stærstan hluta af meistaraflokksferli sínum hefur Halldór Jón hins vegar leikið með Tindastóli.

Halldór lék með Víkingi Reykjavík 2005 og 2006 og eftir stutt stopp í Leikni R. þá gekk hann aftur í raðir Tindastóls sumarið 2007.

Í fyrra skoraði Halldór Jón fjögur mörk í tuttugu leikjum með Tindastóli í annarri deildinni.

Halldór hefur fengið félagaskipti í ÍA og hann ætti því að geta leikið með liðinu gegn Þrótti í Lengjubikarnum á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.