Jesse Lingard, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur gengið í raðir Corinthians í Brasilíu og skrifaði undir samning út tímabilið, þar til í desember.
Þessi 33 ára leikmaður hefur verið félagslaus síðan hann yfirgaf Seúl í lok síðasta árs. Hann var orðaður við bandarísku MLS-deildina en er kominn til Sao Paulo þar sem hann mun klæðast treyju 77.
„Það var vel tekið á móti mér á flugvellinum. Ástríðufullir stuðningsmenn sungu. Leikmenn tóku mér með opnum örmum og ég er hæstánægður. Ég get ekki beðið eftir því að spila fyrir félagið," segir Lingard.
Lingad gekk í raðir FC Seoul í febrúar 2024 eftir að hafa verið félagslaus í sjö mánuði. Árinu á undan hafði hann verið hjá Nottingham Forest.
Lingard á 232 leiki að baki með Manchester United og hefur lyft FA-bikarnum, deildabikarnum og Evrópudeildarbikarnum. Þá hefur hann leikið 32 landsleiki fyrir England.
Hjá Corinthians hittir hann aftur gamlan liðsfélaga hjá Manchester United, Memphis Depay. Dorival Júnior, fyrrum landsliðsþjálfari Brasilíu, stýrir liðinu og hefur það hlotið sjö stig úr fyrstu fjórum leikjum tímabilsins.

O mais novo louco do bando!
— Corinthians (@Corinthians) March 6, 2026
Bem-vindo ao hospício, Jesse Lingard. ????????
Garanta o manto do novo camisa 7??7?? do Timão: https://t.co/ai72nnhIBn#BemVindoJesseLingard#DoReinoÀFavela #VaiCorinthians pic.twitter.com/SLY8sjL1W1
Athugasemdir