06.04.05 - 17:59
Hafliði Breiðfjörð
Podzemsky til Breiðabliks (Staðfest)

Podzemsky er hér í leik með KR gegn Fylki seinasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Tékkneski varnarmaðurinn Petr Podzemsky sem lék með KR á síðustu leiktíð skrifaði í dag undir samning við Breiðablik og mun leika með þeim allt næsta tímabil í 1. deildinni.
Podzemsky mun hefja æfingar með Breiðablik um miðjan apríl en hann er 31. árs varnar- eða miðjumaður. Hann lék 14 leiki í efstu deild með KR á síðustu leiktíð og fékk að líta 6 gul spjöld.
Hann hafði leikið í efstu deild í heimalandinu frá árinu 1997 áður en hann samdi við KR í maí í fyrra. Áður en hann samdi við KR hafði hann æft með Breiðablik en félagið ákvað að semja ekki við hann á þeirri stundu því hann þótti of dýr.