Fotbolti.net
06.04.06 - 12:59
Magnús Már Einarsson

United gerir metsamning við AIG (Staðfest)

Fá AIG framan á búningana á næstu leiktíð.

Fá AIG framan á búningana á næstu leiktíð.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur gert metauglýsingasamning í Bretlandi með því að gera fjögurra ára samning við vátrygginafélagið American International Group sem er metinn á 56,5 milljónir punda.
AIG mun auglýsa framan á búningum United en það tekur við af Vodafone sem ákvað í nóvember að hætta auglýsa hjá enska liðinu í vor og gerast styrktaraðili Meistaradeildarinnar.

Fyrr í vikunni hafði veðmálafyrirtækið Manison sakað United um að vera að semja við tvö fyrirtæki um auglýsingasamning en nú hefur enska liðið gengið frá samningum við AIG og er talið að það muni gefa liðinu aukin fjárráð til leikmannakaupa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.