06.05.11 - 10:17
Hafliði Breiðfjörð
FH lánar Ingimar Elí Hlynsson til KF (Staðfest)

Ingimar Elí í leik með FH fyrr á árinu.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

FH hefur lánað miðjumanninn Ingimar Elí Hlynsson til KF og hann er þegar kominn með leikheimild með liðinu.
Ingimar Elí kom til FH frá KS/Leiftri síðasta haust og hefur spilað mikið með liði FH á undirbúningsmótunum, oftast á miðjunni.
Hann hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu með FH liðinu í Lengjubikarnum og Fótbolta.net mótinu.
KS/Leiftur breytti nafni sínu í KF í vetur og því má segja að Ingimar Elí sé að snúa aftur heim til að spila með sínum mönnum í 2. deildinni.
Hann er klár í slaginn þegar liðið mætir nágrönnum sínum í Dalvík í Valitor-bikarnum næstkomandi mánudag.