06.05.11 - 11:16
Magnús Már Einarsson
Robbie Winters til Grindavíkur (Staðfest)

Mynd: Grindavík

Mynd: Grindavík
Grindvíkingar hafa samið við skoska framherjann Robbie Winters sem kom til félagsins á reynslu fyrr í vikunni en þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.
Þessi 36 ára gamli leikmaður lék með Ólafi Erni Bjarnasyni þjálfara Grindvíkinga hjá Brann á sínum tíma þar sem hann skoraði 42 mörk í 135 deildarleikjum.
Winters á einnig yfir 100 leiki að baki með bæði Dundee United og Aberdeen í Skotlandi en undanfarin tvö ár hefur hann síðan leikið með Livingston í heimalandinu.
Winters gæti leikið sinn fyrsta leik með Grindavík gegn Val á sunnudagskvöld en hann er kominn með leikheimild.
Hér að neðan má sjá myndband sem var búið til eftir að ferli Winters lauk hjá Brann.

Heimild: Morgunblaðið