Fotbolti.net
06.05.11 - 12:18
Magnús Már Einarsson

Nicky Deverdics í BÍ/Bolungarvík (Staðfest) - Ameobi á reynslu

Tomi Ameobi (í miðjunni) í leik með Leeds gegn Portsmouth árið 2007.

Tomi Ameobi (í miðjunni) í leik með Leeds gegn Portsmouth árið 2007.

Canon

Mynd: Getty Images

BÍ/Bolungarvík hefur samið við Nicky Deverdics sem var á reynslu hjá liðinu á dögunum en hann er væntanlegur til Íslands í dag. Þetta staðfesti Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur í samtali við Fótbolta.net.
Deverdics er 23 ára gamall miðjumaður sem var síðast á mála hjá utandeildarliðinu Blyth Spartans.

Deverdics var í unglingaliði Newcastle en hann fór þaðan árið 2006. Síðan þá hefur Deverdics leikið með Gateshead, Bedlington Terriers, Gretna, Barnet og svo síðast Blyth Spartans.

BÍ/Bolungarvík er einnig að skoða frekari liðsstyrk fyrir keppni í fyrstu deild sem hefst eftir viku en í dag mun framherjinn Tomi Ameobi koma til félagsins á reynslu.

Tomi átti að koma fyrr í vikunni og um tíma var útlit fyrir að ekkert yrði af komu hans en nú er ljóst að hann kemur til Íslands í dag. Tomi er yngri bróðir Shola Ameobi framherja Newcastle United en hann á ættir að rekja til Nígeríu.

Tomi er 22 ára gamall en hann var síðast á mála hjá utandeildarliðinu Whitley Bay. Tomi var í unglingaliði Newcastle og síðar unglingaliði Leeds.

Hann lék meðal annars leik með aðalliði Leeds í enska deildabikarnum gegn Portsmouth árið 2007 áður en hann fór til Scunthorpe á láni þar sem hann lék níu leiki í Championship deildinni. Tomi hefur síðan þá leikið með Doncaster, Grimsby og Mansfield í ensku neðri deildunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.