06.05.11 - 12:42
Elvar Geir Magnússon
Helgi Kolviðsson tekur við Austria Lustenau (Staðfest)

Helgi (til vinstri) í landsleik gegn Mexíkó.

Mynd: Getty Images

Helgi Kolviðsson hefur verið ráðinn þjálfari SC Austria Lustenau sem leikur í næstefstu deild í Austurríki.
Helgi þekkir vel til hjá Austria Lustenau því hann lék með liðinu frá 1996-1998.

Þessi 39 ára gamli þjálfari tók við þýska 4. deildarliðinu Pfullendorf síðastliðið sumar en hann var áður aðstoðarþjálfari þar og leikmaður.
Helgi er uppalinn hjá HK en hann lék í atvinnumennsku í Þýskalandi og Austurríki frá 1994 til ársins 2008 þegar hann lagði skóna á hilluna.
Austria Lustenau er í þriðja sæti í fyrstu deildinni í Austurríki þegar fimm umferðir eru eftir en liðið er tólf stigum frá öðru sætinu og því líklega ekki á leið í úrvalsdeildina á þessu tímabili.

Heimild: Heimasíða Austria Lustenau