Fotbolti.net
06.05.11 - 19:56
Ívan Guðjón Baldursson

Rangers selt á eitt pund til Craig Whyte (Staðfest)

Rangers selt á eitt pund til Craig Whyte (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Craig Whyte, fertugur viðskiptasnillingur frá Skotlandi, á nú rúmlega 85% af skoska knattspyrnufélaginu Rangers FC. Staðfest var í dag að Whyte keypti hlutinn af Sir David Murray á eitt pund.

Tæknilega séð á fyrirtæki að nafni Wavetower Limited félagið, en Wavetower Limited er í eigu Liberty Capital sem er í eigu Craig Whyte.
,,Craig er harður stuðningsmaður Rangers og hann hlakkar mikið til að vera partur af framtíð og uppbyggingu félagsins,\" stendur í yfirlýsingu sem Wavetower Limited gaf út í dag.

,,Wavetower tilkynnir með stolti að fyrirtækið er búið að eigna sér 85,3% af hlutabréfum í Rangers Football Club PLC fyrir eitt pund. Wavetower keypti hlutinn af Murray MHL Limited.\"

Whyte fær að kaupa Rangers á eitt pund með því skilyrði að hann borgi upp skuld félagsins sem nemur um 20 milljónum punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.