Fotbolti.net
06.06.06 - 16:37
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Gabri til Ajax (Staðfest)

Gabri García

Gabri García

Canon

Mynd: Getty Images

Gabri García hefur gengið til liðs við fyrrum aðstoðarþjálfara sinn, Henk Ten Cate, hjá Ajax og skrifar undir þriggja ára samning við þennan fornfræga klúbb frá Amsterdam.
Gabri, sem er 27 ára gamall, fer á frjálsri sölu til hollenska liðsins en hann hefur verið allan sinn feril hjá Barcelona. Gabri vann á sínum tíma með Börsungum deildina tvisvar sinnum og Meistaradeildina einu sinni.

,,Ég valdi Ajax útaf þjálfaranum sem ég þekki mjög vel eftir að hafa unnið með honum í Barcelona í þrjú ár. Hann sannfærði mig um að það sé gott fyrir mig að koma hingað," sagði Gabri.

,,Ajax eru heimsfrægur klúbbur sem líkt og Barcelona hafa gott unglingastarf. Þess vegna held ég að ég venjist aðstæðum og menningu hér fljótt."

Gabri, sem bæði getur spilað vörn og miðju, hefur átti við erfið meiðsli að stríða og missti því sæti sitt í byrjunarliði Barcelona. Hann hefur þó alltaf verið vinsæll hjá stuðningsmönnum og spilaði á sínum tíma þrjá landsleiki fyrir Spán.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.