06.06.07 - 06:35
Andri Fannar Stefánsson
Selfoss fær Ásgeir Börk að láni frá Fylki (Staðfest)

Ásgeir í baráttunni við Hjört Loga Valgarðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir í baráttunni við Hjört Loga Valgarðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Börkur Ásgeirsson gekk í gær til liðs við Selfyssinga á láni frá Fylki þar sem hann er uppalinn. Ásgeir er tuttugu ára gamall og getur leikið bæði í fremstu víglínu sem og á kantinum.
Hann lék tvo leiki með Fylki í Lengjubikarnum í vor og þá lék hann einnig tvo leiki í Reykjavíkurmótinu og skoraði hann eitt mark þar.
Síðasta sumar var hann lykilmaður og jafnframt markahæstur í annars flokks liði Fylkis sem komst í bikarúrslit en tapaði fyrir FH.
Selfyssingar sem leika í annarri deildinni eru þar í þriðja sæti eftir þrjá leiki með sex stig. Næsti leikur þeirra er gegn ÍH á morgun og verður Ásgeir löglegur þar.

Heimild: Heimasíða Selfossar