06.06.07 - 11:58
Magnús Már Einarsson
Rannver í Aftureldingu (Staðfest)
Chris McCluskey fer frá félaginu

Rannver Sigurjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Rannver Sigurjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Afturelding úr annarri deild hefur fengið sóknar og kantmanninn Rannver Sigurjónsson frá Fjölni. Rannver hefur komið við sögu í tveimur leikjum hjá Fjölni í fyrstu deildinni í sumar en þessi 22 ára gamli leikmaður kom til liðsins fyrir tímabilið frá Víkingi Reykjavík.
Rannver ætti að fá leikheimild með Aftureldingu í dag sem þýðir að hann getur leikið með liðinu gegn Haukum í annarri deildinni annað kvöld en þessi tvö lið eru í efstu sætum deildarinnar og er Hafnarfjarðarliðið á toppnum á betri markamun.
Rannver á að styrkja sóknarleik Aftureldingar en hinn efnilegi Atli Heimisson fór frá félaginu til ÍBV á dögunum.
Markvörðurinn Chris McCluskey frá Skotlandi er hins vegar farinn frá Aftureldingu og aftur til heimalandsins en hann lék einn leik í annarri deildinni í sumar.