06.06.11 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Steve Morison til Norwich (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Norwich hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili en félagið hefur keypt Steve Morison frá Millwall.
Þessi 27 ára gamli framherji skrifaði undir þriggja ára samning við Norwich en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Morison lék í ensku utandeildinni með Stevenage áður en Millwall keypti hann árið 2009.
Hann skoraði 17 mörk í 43 leikjum í Championship deildinni á nýliðnu tímabili og nú mun hann fá að láta ljós sitt skína í ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC