Álafoss bjargaði þrisvar á marklínu
Þróttur R. 1 - 0 Álafoss
1-0 Magnús Pétur Bjarnason ('51)
1-0 Magnús Pétur Bjarnason ('51)
Þróttur R. mætti Álafossi í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins. Mikill munur er á þessum liðum á blaði en þegar á völlinn er komið eru þetta ellefu leikmenn á móti ellefu.
Þróttarar stjórnuðu fyrri hálfleiknum frá upphafi til enda án þess þó að koma knettinum í netið. Gestirnir úr Mosfellsbæ björguðu á línu og átti Axel Helgi Ívarsson góðan leik á milli stanganna.
Magnús Pétur Bjarnason skoraði í upphafi síðari hálfleiks og jókst sjálfsöryggi Þróttara við markið. Þeir juku sóknarþungan en inn vildi boltinn ekki.
Ótrúleg seigla í vörn gestanna varð til þess að boltanum var bjargað af marklínu þrisvar sinnum í heildina og þá átti Axel Helgi frábærar vörslur.
Álafoss fékk nokkur hálffæri í leiknum en ekki nóg til að pota inn marki. Þróttur vann 1-0 og ótrúlegt að heimamönnum hafi ekki tekist að skora meira.
Sjá textalýsingu
Athugasemdir