Fotbolti.net
06.06.25 - 15:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Víkingur reyndi að ná Amin á síðustu stundu

Víkingur reyndi að ná Amin á síðustu stundu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Njarðvík seldi á dögunum kantmanninn Amin Cosic til KR. Hann er nítján ára vinstri kantmaður sem hefur farið mjög vel af stað á tímabilinu; skorað fjögur mörk í sex leikjum. Hann sýndi glefsur í fyrra og var mjög öflugur á undirbúningstímabilinu. Hann framlengdi samning sinn við Njarðvík í vetur og þá var fjallað um áhuga annarra félaga á honum.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net höfðu KR og Njarðvík verið í samskiptum í talsverðan tíma áður en samkomulag náðist. Sama kvöld og gengið var frá samkomulaginu reyndi Víkingur að blanda sér í baráttuna um Amin en þá var það orðið of seint.
KR opnaði veskið - „Alvöru upphæð fyrir Lengjudeildar-ungling“
TENGT EFNI

KR opnaði veskið - „Alvöru upphæð fyrir Lengjudeildar-ungling“

Amin er uppalinn hjá HK en hafði einungis leikið einn keppnisleik í meistaraflokki með HK áður en hann samdi við Njarðvík eftir tímabilið 2023.

Hann gengur í raðir KR eftir leik Njarðvíkur og Fylkis þann 18. júlí.

„Mjög spennandi leikmaður. Við bindum miklar vonir við hann og hlökkum til að fá hann til okkar þegar glugginn opnar. Leikinn og fljótur kantmaður, leikmaður sem okkur vantar. Okkur vantar þessa týpu sem er úti á kanti. Við höfum margar týpur sem vilja halda sig miðsvæðis. Við bindum miklar vonir við hann," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari og yfirmaður fótboltamála hjá KR, um Amin.

Hann er sonur Almir Cosic sem lék með HK fyrir rúmum áratug síðan.
Víkingur reyndi að ná Amin á síðustu stundu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.