Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
banner
   lau 06. júní 2026 12:35
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Mín skoðun 
„Grafalvarlegt mál hvernig staða liðsins er“
FH-ingar hafa ekki mikið fagnað á þessu tímabili.
FH-ingar hafa ekki mikið fagnað á þessu tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH situr í neðsta sæti Bestu deildarinnar með aðeins tvö stig eftir níu umferðir og var staða liðsins til umræðu í hlaðvarpsþættinum Mín skoðun þar sem Valtýr Björn Valtýsson ræddi við Kristin Kjærnested, fótboltalýsanda og fyrrum formann KR.

Valtýr sagðist hafa stórar áhyggjur fyrir hönd FH og Kristinn tók undir þau orð.

„Mér finnst að FH sem klúbbur vera farinn að tala sig í það að þetta sé ákveðin vegferð í gangi, og það sé bara eins og það er og það eigi ekki að kvika frá því. FH er gamalt stórveldi, á þessari öld hefur ekkert félag unnið deildina oftar en FH. Mér finnst eins og allt tal í Hafnarfirði vera á þeim nótum eins og þeir séu ekki stór klúbbur," segir Kristinn sem talar um karaktersleysi í leikmannahópnum í dag.

„Það er grafalvarlegt mál hvernig staða liðsins er. Það hafa verið flatar frammistöður, þeir leka inn mörkum. Þessir karakterar sem voru, hver er prímusmótorinn núna? Ég bara veit það ekki."

„Mér finnst ákveðnir menn hafa koðnað niður. Kjartan Kári hefur engan veginn náð sér á strik. Ég ætla bara að segja það hreint út að ég hef gríðarlega áhyggjur af FH-liðinu. Maður man eftir baráttunni gegn þeim í gegnum tíðina en þeir eru svo langt frá því að vera í þeim standard sem þessi klúbbur var búinn að skapa sér á sínum tíma," segir Kristinn í þættinum.

FH á gríðarlega mikilvæga leiki í þessum mánuði en liðið er að fara að mæta Keflavík, Þór og ÍBV.
Slapp
banner
banner