Hinn 62 ára gamli Tony Mowbray hefur verið ráðinn aftur til Blackburn Rovers fjórum árum eftir að hafa yfirgefið félagið til að taka svo við Sunderland sumarið 2022.
Mowbray stýrði Blackburn í rúmlega fimm ár frá febrúar 2017 út tímabilið sem lauk 2022.
Hann hefur síðan þá verið við stjórnvölinn hjá Sunderland, Birmingham og West Brom og snýr núna aftur á kunnuglegar slóðir.
Það verður áhugavert að fylgjast með hvaða hlutverk Andri Lucas Guðjohnsen fær undir stjórn nýs þjálfara eftir að hafa skorað 7 mörk í 25 deildarleikjum fyrir Blackburn á nýliðinni leiktíð, sem var hans frumraun á Englandi.
Blackburn endaði aðeins fimm stigum frá fallsæti, með 52 stig úr 46 umferðum.
02.02.2026 13:31
Andri Lucas fær nýjan stjóra (Staðfest) - Verður það Bilic eða Mowbray?
We are delighted to welcome back Tony Mowbray, who returns to Ewood Park as our Head Coach ™?#Rovers ?????? pic.twitter.com/eGJyYsqhX4
— Blackburn Rovers (@Rovers) June 5, 2026



