Óli Flóvents og hans lið á Selfossi tóku sér ferð í Egilshöllina og sigruðu þar Fjölni 2-3 í 6. umferð 2. deildar í dag.
Lestu um leikinn: Fjölnir 2 - 3 Selfoss
„Ég veit ekki hvernig mér líður, mér fannst óþarfi að þetta fór í háspennutrylli. Framan af vorum við flottir og undir stjórn, en svo fáum við á okkur þessi tvö mörk á stuttu millibili og þá fannst mér við aðeins tensast upp.''
Selfoss voru komnir 0-3 yfir þegar Mikael Breki Jörgensen og Patryk Hryniewicki minnka muninn í 2-3 á 2. mínútna millibili.
„Við höfum tvisvar sinnum fengið mark á okkur í nánast uppbótartíma í sumar og erum aðeins særðir af því. Við héldum leiknum í dag óþarflega spennandi en ég er ánægður með strákana að hafa ekki fengið á sig þriðja markið.''
Jón Daði Böðvarsson kom aftur inn í liðið og kom inná á 62. mínútu fyrir Viðar Örn Kjartansson. Þetta var fyrsti leikur Jón Dags síðan í 2-1 sigri Selfoss gegn Kormáki/Hvöt í 3. umferð 2. deildar.
„Ég er virkilega ánægður með hann. Þetta mál er að baki og ég gef honum risastórt hrós. Hann hefur unnið í þessu með okkur og við allir saman. Hann kemur inn og gefur strákunum þvílíka vítamínssprautu.''
Selfoss spilar næst á útivelli gegn Kára í Akraneshöllinni næsta miðvikudag 10. júní.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.





















