Fotbolti.net
06.07.06 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Ólafur Kristjáns tekinn við Blikum (Staðfest)

Ólafur Kristjáns tekinn við Blikum (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Helgi Kristjánsson hefur tekið við þjálfun Breiðabliks út þetta tímabil en hann tekur við starfinu eftir að Bjarni Jóhannsson hætti með liðið fyrr í vikunni. Arnar Bill Gunnarsson, sem verið hefur aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, mun starfa við hlið Ólafs og verða honum til aðstoðar.
Ólafur Helgi hefur verið í fríi hjá þjálfun síðan hann hætti sem þjálfari Fram síðastliðið haust eftir að liðið féll úr Landsbankadeildinni eftir tap gegn FH í lokaumferðinni.

Hann mætti á sínu fyrstu æfingu hjá Breiðablik nú síðdegis og mun hann stýra liðinu í fyrsta sinn í útileik gegn Val á Laugardalsvelli næstkomandi sunnudag.

Ólafur lék um árabil með FH og KR hér á landi áður en hann fór og lék með AGF í Árósum. Þar þjálfaði hann einnig unglingalið félagsins og var aðstoðarþjálfari AGF í dönsku úrvalsdeildinni árið 2004. Hann tók svo við Fram sumarið 2004 en hætti með liðið eins og við höfum greint frá síðastliðið haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.