Fotbolti.net
06.07.06 - 18:50
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Vieri til Sampdoria (Staðfest)

Spilar með Sampdoria á næsta tímabili eftir að hafa jafnað sig á erfiðum meiðslum

Spilar með Sampdoria á næsta tímabili eftir að hafa jafnað sig á erfiðum meiðslum

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Sampdoria hefur komist að samkomulagi við sóknarmanninn Christian Vieri um að ganga til liðs við þá eftir hálfs árs dvöl í Frakklandi.
Vieri, sem verður 33 ára gamall í næstu viku, skrifaði undir eins árs samning við Sampa. Vieri fór til Monaco í janúar frá AC Milan í von um að koma sér í almennilegt leikform fyrir HM í Þýskalandi en meiddist illa og náði sér ekki í tæka tíð.

Vieri hefur á sínum ferli spilað Torino, Atalanta, Juventus, Atletico Madrid, Lazio, Inter Milan, AC Milan og Monaco en hann var í lengstan tíma hjá Inter. Vieri var í sex ár hjá Inter og skoraði þar hvorki meira né minna en 102 mörk í 143 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.