Fotbolti.net
06.07.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Darko Kovacevic til Olympiakos (Staðfest)

Darko Kovacevic til Olympiakos (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Gríska liðið Olympiakos hefur fengið framherjann stóra og stæðilega Darko Kovacevic frá Real Sociedad. Kovacevic er ekki eini leikmaðurinn sem Olympiakos hefur fengið því í fyrradag fékk liðið varnarmanninn Paraskevas Antzas og á dögunum komu Leonel Núñez og Luciano Galletti.
Kovacevic sem er 33 ára og fyrrverandi leikmaður Juventus gat yfirgefið Sociedad eftir að liðið féll hann lék alls skoraði alls 92 mörk í 261 leik með félaginu.

,,Ég vona að þetta verði mjög jákvæð reynsla og ég vonast til að vinna titla með Olympiakos," sagði Kovacevic við komuna til félagsins í gær.

Olympiakos er eins og fyrr segir í óða önn að styrkja sig en liðið hefur einnig verið orðað við Raul Bravo varnarmann Real Madrid.

Heimild: Heimasíða UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.