Fotbolti.net
06.07.07 - 15:50
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Freddy Eastwood til Wolves (Staðfest)

Freddy Eastwood

Freddy Eastwood

Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur gengið frá kaupunum á sóknarmanninum Freddy Eastwood sóknarmanni Southend fyrir 1,5 milljón punda.
Þessi 23 ára leikmaður skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið en salan þangað virtist vera í hættu fyrr í þessari viku þegar Charlton komu inn í kapphlaupið um kappann.

Eastwood er hins vegar öruggur um að hann valdi rétta kostinn: ,,Alveg síðan Wolves hafði áhuga á mér vissi ég að það væri gott að fara þangað. Charlton voru óákveðnir og ég er mjög ánægður að hafa gengið til liðs við Wolves.”

Eastwood hefur skorað 49 mörk í 111 leikjum fyrir Southend eftir að hafa komið til félagsins í nóvember 2004.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.