06.07.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Aragones tók við Fenerbahce (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tyrkneska félagið Fenerbahce staðfesti í gær að hafa ráðið Luis Aragones fráfarandi landsliðsþjálfara Evrópumeistara Spánar sem nýjan knattspyrnustjóra félagsins.
Aragones stýrði Spánverjum til sigurs á Evrópumóti landsliða í síðasta mánuði en það var í fyrsta sinn í 44 ár sem Spánn hefur unnið stórmót.
Kallinn er orðinn 69 ára gamall og gerir nú tveggja ára samning um þjálfun Fenerbahce.
,,Ég er hérna bæði með hugann og hjartað til að vinna fyrir Fenerbahce,\" sagði Aragones sem hefur á ferlinum þjálfað Barcelona og Valencia.
,,Ég veit að ég er að taka við góðu og sterku liði. Ég get sagt ykkur að ég er mjög ánægður með að vera hérna.\"
,,Leikvangurinn er frábær og ég er viss um að andrúmsloftið verður enn betra þegar stuðningsmennirnir koma.\"
,,Hinsvegar vil ég gera hlutina rólega, þetta tímabilið viljum við vinna alla mögulega titla.\"
Aragones hefur verið við þjálfun síðan 1974 en undanfarin fjögur ár stýrði hann spænska landsliðinu.

Heimild: BBC