06.07.08 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Fiorentina fá til sín tvo varnarmenn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska efstu deildarfélagið Fiorentina hefur landað tveimur varnarmönnum til sín fyrir komandi tímabil, en það eru þeir Juan Manuel Vargas frá Catania og Gianluca Comotto frá Torino.
Vargas, sem er 24 ára gamall gerir fimm ára samning við félagið, á meðan Comotto, sem er 29 ára gerir aðeins þriggja ára samning.
Vargas var vel og lengi orðaður við félög eins og Manchester United og Real Madrid eftir að hafa átt góðu gengi að fagna á Ítalíu á síðasta tímabili, en hann kemur til Fiorentina á rúmlega 12 milljónir evra, eða 9 milljónir punda.
Comotto er vel kunnugur Fiorentina, en hann eyddi sex mánuðum hjá félaginu á láni frá Torino á síðasta tímabili en stóð sig ekki eins og koma skildi. Þá er hann núna ákveðinn í að sýna stuðningsmönnum liðsins hver hann er í raun og veru. Hann kemur til félagsins án greiðslu.

Heimild: Sky