06.07.09 - 09:34
Gunnar Gunnarsson
Yuri Zhirkov til Chelsea (Staðfest)

Yuri Zhirkov nýr leikmaður Chelsea.

Mynd: Getty Images

Yuri Zhirkov nýr leikmaður Chelsea.

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur gengið frá kaupum á rússneska landsliðsmanninum Yuri Zhirkov frá CSKA Moskvu fyrir um 18 milljónir punda.
Hinn 25 ára gamli Zhirkov stóðst læknisskoðun í London í morgun og er talið að leikmaðurinn fái um 80,000 þúsund pund á viku en kappinn skrifar undir fjögra ára samning við félagið.
Zhirkov, sem sló í gegn á Evrópumóti landsliða síðasta sumar hefur lengi verið orðaður við Chelsea en núna eru vistaskiptin loks orðin að veruleika.
,,Mig hefur alltaf langað til að spila fyrir stórt félag. Það hefði verið óafsakanlegt að láta slíkt tækifæri úr greipum sér ganga,\" sagði Yuri Zhirkov nýjasta skrautfjöður Chelsea um komu sína til liðsins.
Hjá CSKA Moskvu tókst Zhirkov að vinna Evrópukeppni félagsliða en leikmaðurinn hefur jafnan verið kallaður hinn rússneski Ronaldinho.
Zhirkov er þriðji leikmaðurinn sem Chelsea festir kaup á í sumar en áður höfðu markvörðurinn Ross Turnbull og framherjinn Daniel Sturridge skrifað undir á Stamford Bridge.

Heimild: Soccernet