Fotbolti.net
06.07.11 - 11:26
Hörður Snævar Jónsson

Stefan Savic til Manchester City (Staðfest)

Savic í baráttu við Shaun Wright Phillips í landsleik en þeir eru nú liðsfélagar.

Savic í baráttu við Shaun Wright Phillips í landsleik en þeir eru nú liðsfélagar.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur gengið frá kaupunum á Stefan Savic frá Partizan Belgrad.
Þessi 20 ára gamli varnarmaður skrifaði undir fjögurra ára samning við City.

Hann fékk atvinnuleyfi á Englandi eftir að hafa spilað síðustu landsleiki með Svartfjallalandi.

Savic getur bæði leikið sem miðvörður og hægri bakvörður.

Hann er annar leikmaðurinn sem City krækir í þessa vikuna því félagið fékk Gael Clichy á mánudaginn frá Arsenal.

Heimild: Heimasíða Manchester City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.