06.07.11 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Miðjumaður frá Suður-Afríku í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
BÍ/Bolungarvík hefur samið við suður-afríska miðjumanninn Nicholas Anthony Efstathiou en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Nicholas er 22 ára gamall og kemur úr unglingaliði Ajax Cape Town í heimalandi sínu.

Nicholas kom til Reykjavíkur í gær og lenti á Ísafirði í morgun. Nicholas mun hitta liðsfélaga sýna í kvöld þegar að hann mætir á sína fyrstu æfingu á Skeiðisvelli í Bolungarvík.
Hann verður kominn með leikheimild þegar félagaskiptaglugginn opnast á nýjan leik 15. júlí.
Nicholas ætti því að geta leikið sinn fyrsta leik með BÍ/Bolungarvík gegn ÍR laugardaginn 16. júlí.
BÍ/Bolungarvík er sem stendur í sjötta sæti í fyrstu deildinni en liðið mætir einnig KR í undanúrslitum Valitor-bikarsins í lok mánaðarins.

Heimild: Heimasíða BÍ/Bolungarvíkur