Fotbolti.net
06.07.23 - 13:39
Elvar Geir Magnússon

Azpilicueta kveður Chelsea með tárin í augunum

Azpilicueta kveður Chelsea með tárin í augunum
Canon

Mynd: Getty Images

Cesar Azpilicueta var með tárin í augunum þegar tekið var upp myndband þar sem hann kveður Chelsea eftir ellefu ár hjá félaginu.

Þessi 33 ára varnarmaður hefur ákveðið að kveðja Chelsea og er búinn að semja við Atletico Madrid á Spáni. Hann lék 508 leiki og vann níu bikara hjá Chelsea.
„Til hamingju með allt sem þú hefur afrekað. Þú verður goðsögn hjá Chelsea til eilífðar," segir í tilkynningu Chelsea.

Þar eru orð frá eigandanum Todd Boehly:

„Þjálfarar og liðsfélagar, bæði fyrrum og núverandi, hafa treyst honum til að leiða liðið sem fyrirliði. Við erum þakklát fyrir hans framlag til félagsins. Cesar verður alltaf velkominn til baka á Stamford Bridge," segir Boehly.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.