Man Utd ætlar að bjóða Calvert-Lewin samning - Al Nassr á eftir Rodrygo - Chelsea fylgist með stöðu Nwaneri
banner
   sun 06. júlí 2025 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kyogo orðinn liðsfélagi Willums og Alfons (Staðfest)
Mynd: EPA
Birmingham heldur áfram að styrkja sig fyrir átökin í Championship deildinni á næstu leiktíð.

Japanski framherjinn Kyogo Furuhashi er genginn ti lliðs við félagið frá franska liðinu Rennes. Birmingham borgar um 10 milljónir punda fyrir hann.

Þessi þrítugi leikmaður skrifar undir þriggja ára samning.

Hann gekk til liðs við Rennes frá Celtic í janúar en spilaði aðeins sex leiki. Hann skoraði 85 mörk í 165 leikjum fyrri Celtic og hefur spilað 23 landsleiki fyrir hönd Japan.

Willum Þór Willumsson og Alfons Sampsted eru leikmenn Birmingham sem spilar í Championship deildinni á næstu leiktíð eftir að hafa unnið C-deildina. Sóknarmaðurinn Demarai Gray gekk einnig til liðs við Birmingham á dögunum.


Athugasemdir
banner