Fotbolti.net
06.08.06 - 13:44
Hafliði Breiðfjörð

Shittu til Watford (Staðfest)

Danny Shittu hér vinstra megin á myndinni í leik með QPR.

Danny Shittu hér vinstra megin á myndinni í leik með QPR.

Canon

Mynd: Getty Images

Watford hafa keypt Danny Shittu varnarmann QPR á 1,6 milljón punda en þetta kom nokkuð óvænt upp því talið var að WBA væri að kaupa hann eftir að 1,5 milljón punda tilboði þeirra var tekið.
Watford náðu hinsvegar að yfirtaka þann samning og gerðu þriggja ára samning við leikmanninn en á endanum gæti kaupverð hækkað upp í þrjár milljónir punda.

,,Við erum að kaupa annan leikmann sem hentar stíl Watford, hungraður í að læra og sanna gildi sitt á meðal þeirra bestu," sagði Aidy Boothroyd stjóri Watford í dag.

,,Hann er leikmaður sem við höfum verið á eftir í nokkurn tíma og ég er ánægður með að hann mun nú fá tækifæri til að berjast um sæti meðal annarra frábærra miðvarða."

Shittu mun verða í leikmannahópnum sem mætir Inter Milan í æfingaleik á þriðjudagskvöld. Hann fór til QPR frá Charlton árið 2002 á 350 þúsund pund sem Matthew og Alex Winton stuðningsmenn QPR fjármögnuðu.

Hann lék 162 leiki með QPR og var í uppáhaldi meðal stuðningsmannana.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.