06.08.07 - 06:01
Sindri Þór Þorgeirsson
Arsenal lánar Carlos Vela til Osasuna (Staðfest)

Carlos Vela er hér í leik gegn U-20 árs landsliði Argentínu

Mynd: Getty Images

Carlos Vela er hér í leik gegn U-20 árs landsliði Argentínu

Mynd: Getty Images
Mexíkaninn ungi Carlos Vela leikmaður Arsenal hefur verið sendur á lán til spænska liðsins Osasuna en þessi sóknarmaður er í miklum metum hjá þjálfaraliði Arsenal og Arsene Wenger hefur margotft sagt að þessi strákur eigi bjarta framtíð hjá félaginu.
Vela sem er átján ára var á síðasta tímabili lánaður til spænska liðsins Salamanca sem spilaði einni deild neðar en Osasuna en nú telja bæði Wenger og Vela að tími sé kominn á að láta reyna á hæfileika hans í La Liga en Osasuna komust meðal annars í undanúrslit Uefa Cup á síðustu leiktíð þar sem þeir töpuðu fyrir meisturunum í Sevilla.
,,Þetta stig hræðir mig ekki, þetta er draumur fyrir mig. Ég spilaði í annarri deildinni og nú bíður mín ný áskorun. Osasuna er gott lið fyrir mig til að sýna hæfileika mína. Allir vilja spila í byrjunarliði, nú hef ég tækifæri til að spila í liði sem er alltaf að berjast um Evrópusæti og það er mjög mikilvægt,” sagði Carlos Vela við fjölmiðla í gær.

Heimild: Sky Sports