Fotbolti.net
06.08.07 - 18:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Leighton Baines til Everton (Staðfest)

Leighton Baines

Leighton Baines

Canon

Mynd: Getty Images

Wigan Athletic hefur nú staðfest að vinstri bakvörðurinn Leighton Baines sé farinn til Everton fyrir fimm milljónir punda.
Þessi enski U-21 árs landsliðsmaður var gefið leyfi til þess að ræða við David Moyes og félaga í Everton um helgina og núna hafa þeir komist að samkomulagi.

Baines, sem kom ungur að aldri til Wigan og spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið árið 2002, segir það hafa verið erfiða ákvörðun að fara frá JJB Stadium.

,,Ég vil þakka öllu starfsliðinu hjá Wigan. Ég hef átt sex frábær ár hérna og það var mjög erfið ákvörðun að fara frá því vegna þess að þetta er klúbbur sem gaf mér tækifæri til þess að sanna mig í leiknum,” sagði Baines á heimasíðu Wigan.

Baines, sem verður 23 ára í desember, var einnig orðaður við Newcastle og Sunderland en hann hafnaði tilboði frá síðarnefnda liðinu í síðasta mánuði.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.