Fotbolti.net
06.08.09 - 12:36
Magnús Már Einarsson

Fernando Guerrero til Burnley (Staðfest)

Lukkudýr Burnley á góðum degi.

Lukkudýr Burnley á góðum degi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Burnley hefur fengið Fernando Guerrero á láni frá Independiente del Valle.
Guerrero er kantmaður frá Ekvador en hann hefur æft með Burnley að undanförnu og heillað forráðamenn félagsins.

,,Fernando er spennandi leikmaður miðað við það að hann er aðeins 19 ára og við teljum að hann hafi ótrúlega hæfileika,\" sagði Owen Coyle stjóri Burnley.

Coyle hefur verið duglegur að styrkja lið Burnley fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni en Guerrero er sjötti leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar.

Áður hafði Burnley fengið David Edgar, Steven Fletcher, Richard Eckersley, Tyrone Mears og Brian Easton til liðs við sig.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.