Fotbolti.net
06.08.09 - 12:02
Magnús Már Einarsson

Wigan fær Scott Sinclair á láni frá Chelsea (Staðfest)

Wigan fær Scott Sinclair á láni frá Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hefur komist að samkomulagi við Chelsea um að fá kantmanninn Scott Sinclair á láni í eitt ár.
Þessi tvítugi leikmaður var í láni hjá Birmingham á síðari hluta síðustu leiktíðar þar sem hann hjálpaði liðinu að komast upp í ensku úrvalsdeildina að nýju.

Áður hefur Sinclair verið lánsmaður hjá Plymouth, QPR, Charlton Athletic og Crystal Palace.

,,Scott hefur mikla hæfileika og getur spilað bæði sem fremsti maður og á kantinum. Ég er ánægður með að hann hafi gengið til liðs við okkur,\" sagði Roberto Martinez stjóri Wigan.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.