Fotbolti.net
06.08.09 - 15:34
Magnús Már Einarsson

Seyi Olofinjana og Jozy Altidore til Hull (Staðfest)

Seyi Olofinjana.

Seyi Olofinjana.

Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur keypt Seyi Olofinjana frá Stoke City á þrjár milljónir punda og þá hefur Jozy Altidore komið til félagsins á láni frá Villareal.
Olofinjana er nígerískur miðjumaður en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Hull.

Franska félagið Monaco vildi einnig fá leikmanninn en Olofinjana var spenntari fyrir Hull.

Altidore er bandarískur framherji en hann vakti athygli fyrir vasklega framgöngu í Álfukeppninni í sumar.

Hull fær hann á láni fyrst um sinn en getur síðan keypt leikmanninn ef hann stendur sig vel.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.