22.10.04 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Barry frá í tvo mánuði




Gareth Barry miðjumaður Aston Villa verður frá í að minnsta kosti tvo mánuði vegna hnémeiðsla. Barry sem að er 23 meiddist í 3-1 tapi Aston Villa gegn Arsenal um síðustu helgi en hann meiddist eftir ljóta tæklingu frá Lauren.
Fyrst var talið að Barry yrði frá í um það bil tvær vikur en nú hefur komið í ljós að hann verður lengi frá og er það gífurlegt áfall fyrir Aston Villa en Barry gæti verið frá út þetta ár.
