06.08.10 - 12:52
Hafliði Breiðfjörð
Cesc Fabregas verður áfram hjá Arsenal (Staðfest)

Cesc Fabregas.

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Cesc Fabregas.

Mynd: Getty Images
Spænski landsliðsmaðurinn Cesc Fabregas hefur staðfest að hann verði áfram í herbúðum Arsenal á komandi leiktíð en þetta kom fram á vef Sky rétt í þessu.
Fabregas sem er 23 ára gamall hefur stöðugt verið orðaður við Barcelona allt þetta sumar og hefur viðurkennt að hafa fengið tvö formleg tilboð.
Arsenal hafnaði hinsvegar þessum tilboðum og stóð alltaf fast á því að hann væri ekki til sölu.
Fabregas viðurkenndi í dag að hann hafi íhugað að fara til Barcelona en sé nú ákveðinn í að vera áfram hjá Arsenal þar sem hann hefur verið síðan hann kom 16 ára gamall frá Barcelona.
,,Fyrst vil ég biðja alla stuðningsmenn Arsenal afsökunar á að hafa ekki talað fyrr um framtíð mína en ég hef ekki vitað hvað ég ætlaði að gera fyrr en núna. ég get ekki neitað að það heillaði að fara til félags eins og Barcelona.\"
,,Það er félagið þar sem ég lærði fótboltann, það er heimabær minn þar sem vinir og fjölskylda mín eru og félagið sem mig hefur alltaf dreymt um að spila fyrir.\"
,,Það eru ekki margir leikmenn í heiminum sem myndu ekki vilja spila fyrir Barcelona. Ég hef rætt við Arsene Wenger, bæði persónulega og í síma undanfarna mánuði og þó svo ég upplýsi ekki um það sem fór fram í þeim samtölum er niðurstaðan sú að Barcelona hefur lagt fram tvö tilboð sem Arsenal hafnaði.\"
,,Ég er atvinnumaður og skil vel að Arsenal vilji ekki selja mig. Ég skulda félaginu mikið, stjóranum og stuðningsmönnunum og virði ákvörðun þeirra og mun einbeita mér að nýrri leiktíð framundan með Arsenal.\"
,,Ég get fullvissað alla stuðningsmenn um að nú er viðræðunum lokið og ég verð 100% einbeittur að því að spila fyrir Arsenal. Ég er leikmaður Arsenal og um leið og ég stíg inn á völlinn er það eina félagið sem ég hugsa um.\"
,,Ég hlakka til að byrja nýtt tímabil og gleyme þessum vangaveltum.\"

Heimild: Sky | Daily Mail

Mynd: Getty Images