Fotbolti.net
06.08.11 - 19:02
Alexander Freyr Tamimi

Zhirkov til Anzhi Makhachkala (Staðfest)

Zhirkov er kominn aftur til Rússlands.

Zhirkov er kominn aftur til Rússlands.

Canon

Mynd: Getty Images

Rússneski landsliðsmaðurinn Yuri Zhirkov er genginn til liðs við Anzhi Makhachkala í heimalandinu eftir að hafa mistekist algerlega að slá í gegn hjá Chelsea.
Hinn 27 ára Zhirkov átti ansi erfitt uppdráttar þau tvö ár sem hann var í Lundúnum og tókst honum aldrei að skipa sér sess í liði Carlo Ancelotti eftir að hafa gengið til liðs við Chelsea fyrir 18 milljónir punda frá CSKA Moskvu.

Zhirkov, sem var þar með dýrasti rússneski leikmaður sögunnar, viðurkenndi áhuga sinn á því að snúa aftur til heimalandsins eftir erfiða tíma á Englandi og voru félög á borð við Rubin Kazan, Dynamo Moskvu og Zenit frá Sankti Pétursborg orðuð við leikmanninn.

Hann ákvað þó að ganga til liðs við Anzhi, þar sem olíukóngurinn Suleyman Kerimov ræður ríkjum og dælir peningum í félagið. Brasilíski leikmaðurinn Roberto Carlos er einmitt fyrirliði liðsins.

,,Ég er mjög glaður að vera kominn hingað og ég vona að ég geti spilað minn fyrsta leik fyrir Anzhi í næsta leik liðsins,\" sagði Zhirkov við heimasíðu félagsins eftir að hafa skrifað undir fjögurra ára samning.

Heimild: Soccernet

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.