Fotbolti.net
06.08.11 - 22:17
Alexander Freyr Tamimi

Marton Fulop til West Brom (Staðfest)

Marton Fulop.

Marton Fulop.

Canon

Mynd: Getty Images

West Brom hefur fengið til sín liðsstyrk í formi Marton Fulop markvarðar Ipswich og skrifaði hann undir eins árs samning við félagið.
West Brom seldi aðalmarkvörðinn Scott Carson til Bursaspor fyrr í sumar og hafa verið í leit að nýjum markverði. Þeim tókst þó að fá Ben Foster til sín á láni frá Birmingham yfir tímabilið en þar sem þeir þurfa að láta frá sér Boaz Myhill í staðinn vildi Roy Hodgson fá varamarkvörð.

Nú hefur þeim málum verið reddað og mun hinn 28 ára Fulop verða til taks, en hann var áður markvörður Sunderland og hirti meðal annars sæti aðalmarkvarðar af Craig Gordon þar á bæ á tímabili.

Fulop og Foster eru báðir í leikmannahópi West Brom sem mætir Parma í vináttuleik á sunnudag.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.