06.08.11 - 21:27
Alexander Freyr Tamimi
John Carew í West Ham (Staðfest)

John Carew er kominn í West Ham.

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Framherjinn John Carew er genginn til liðs við West Ham, sem féll í ensku Championship deildina á síðasta tímabili.
Carew stóðst læknisskoðun á sunnudag og skrifaði undir samning í eftirmiðdaginn. Hann verður í treyju númer 11 og er fimmti leikmaðurinn sem West Ham fær til sín fyrir þetta tímabil.
,,Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað og það er frábært að ganga til liðs við svona stórt félag,\" sagði Carew.
,,Ég hlakka til að vera hluti af góðu liði hérna sem mun koma okkur strax upp í úrvalsdeildina.\"
Carew hefur spilað á Englandi síðan í janúar 2007 þegar hann gekk til liðs við Aston Villa frá Valencia. Á síðasta tímabili fór hann á láni til Stoke.

Heimild: Vefur West Ham