06.10.06 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Heimir Hallgrímsson áfram með ÍBV (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson


Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson
Heimir Hallgrímsson verður áfram þjálfari ÍBV en hann hefur samþykkt þriggja ára samning við félagið og mun hann skrifa undir hann síðar í dag.
Heimir sem hefur þjálfað í Eyjum í mörg ár tók við karlaliði félagsins af Guðlaugi Baldurssyni þegar hann hætti í sumar en honum tókst ekki að bjarga Eyjamönnum frá falli.
Á sínum tíma þjálfaði Heimir kvennalið ÍBV og náði góðum árangri þar en spennandi verður að fylgjast með Eyjamönnum í fyrstu deildinni á næsta ári.
Á sínum tíma þjálfaði Heimir kvennalið ÍBV og náði góðum árangri þar en spennandi verður að fylgjast með Eyjamönnum í fyrstu deildinni á næsta ári.
