06.12.07 - 10:57
Hafliði Breiðfjörð
Verbeek tekur við landsliði Ástralíu (Staðfest)

Pim Verbeek.

Mynd: Getty Images

Pim Verbeek.

Mynd: Getty Images
Ástralir staðfestu nú í nótt að íslenskum tíma að þeir hafi ráðið Hollendinginn Pim Verbeek sem nýjan landsliðsþjálfara sem á að stýra liðinu í undankeppni HM 2010.
Ástralir höfðu átt í viðræðum við Verbeek og Frakkann Philippe Troussier um starfið eftir að Dick Advocaat hætti skyndilega við samning sinn við knattspyrnusambandið og ákvað að vera áfram hjá Zenit St. Petersburg í Rússlandi.

Verbeek sem er 51 árs gamall sagði á fréttamannafundi að hann væri vongóður um að Ástralía kæmist í úrslitakeppni HM 2010 í Suður Afríku.
,,Ég lofa að við gerum allt til að ná árangri og ég er 100% viss um að við munum ná árangri og að við förum á Heimsmeistaramótið og munum eiga gott mót þar líka," sagði Verbeek.
,,Þetta er stór áskorun, og ég hlakka mikið til þess að koma til Ástralíu og kynnast A-deildinni,"
Verbeek er reyndur þjálfari sem er nýhættur sem landsliðsþjálfari Suður Kóreu en hafði áður verið aðstoðarmaður Guus Hiddink með liðið.
Hann hefur einnig þjálfað félagslið í Japan og verið aðstoðarþjálfarai í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum.
Auk þess hefur hann þjálfað liði í heimalandi sínu Hollandi eins og Feyenoord, PSV Eindhoven og Borussia Mönchengladbach í Þýskalandi.

Heimild: AFP