Fotbolti.net
06.12.19 - 18:51
Ívan Guðjón Baldursson

Ásgeir Þór aftur til Leiknis R. (Staðfest)

Ásgeir Þór aftur til Leiknis R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Ásgeir Þór Magnússon er genginn aftur í raðir uppeldisfélags sins, Leiknis R., eftir rúmlega sjö ára fjarveru.
Ásgeir Þór er 28 ára og gerði góða hluti með Leikni í 1. deildinni sumarið 2012. Valur hreifst af honum og fékk hann yfir til sín um mitt sumar en Ásgeiri tókst ekki að vinna sér inn byrjunarliðssæti á Hlíðarenda.

Í heildina spilaði Ásgeir tíu keppnisleiki fyrir Val áður en hann skipti yfir til Þróttar Vogum og svo til Fjarðabyggðar. Hann var varamarkvörður hjá Stjörnunni síðasta sumar.

Ásgeir þótti mikið efni og spilaði 11 leiki fyrir yngri landslið Íslands á sínum tíma. Hann hefur þó aðeins spilað 52 keppnisleiki hér á landi samkvæmt vef KSÍ.

„Leiknir bindur miklar vonir við endurkomu Ásgeirs. Okkar maður!" segir í færslu á Twitter aðgangi Leiknis.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.