Luka Modric var að vonum ánægður með sigur Króata gegn Japan eftir vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitum á HM í gær.
Króatar þekkja vítaspyrnukeppnir vel en liðið fór í gegnum tvær slíkar á leið sinni í úrslitaleikinn á HM 2018.
„Það lítur út fyrir að við getum þetta ekki nema með smá dramatík. Þetta var mjög erfiður leikur gegn mjög erfiðu liði. Við sýndum karakter þegar við komum til baka. Livakovic gerði kraftaverk. Mjög erfiður og þreytandi leikur," sagði Modric.
Dominik Livakovic var hetja Króata en hann varði þrjár vítaspyrnur. Króatía mætir Brasilíu í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir