Fotbolti.net
07.01.08 - 16:07
Magnús Már Einarsson

Reading fær tékkneskan miðjumann (Staðfest)

Marek Matejovsky.

Marek Matejovsky.

Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur keypt tékkneska miðjumanninn Marek Matejovsky frá Mlada Boleslav en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Marek sem er 26 ára gamall hefur gert þriggja og hálfs árs samning við Reading.

,,Enska úrvalsdeildin er sú besta í heimi. Ég veit hvert ég er að fara, ég hef þegar gengið frá íbúðarmálum," sagði Marek við Sport.cz.

,,Ég fer til Englands í dag ásamt fjölskyldu minni. Ég vonast til að geta sýnt að ég get spilað fótbolta vel," bætti Marek við.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.