Fotbolti.net
07.01.08 - 19:10
Magnús Már Einarsson

Portsmouth fær framherja frá Basel (Staðfest)

<b>Góður:</B> <br> Harry Redknapp hreifst af hæfileikum Danijel Subotic á æfingum hjá Portsmouth.

Góður:
Harry Redknapp hreifst af hæfileikum Danijel Subotic á æfingum hjá Portsmouth.

Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur keypt svissneska framherjann Danijel Subotic frá Basel fyrir óuppgefna upphæð en leikmaðurinn hefur gert þriggja og hálfs árs samning við félagið.
Harry Redknapp stjóri Portsmouth er í leit að nýjum leikmönnum og hefur nú samið við þennan átján ára gamla leikmann.

,,Það var mælt með honum þannig að við fengum hann hingað á æfingar í nokkra daga og hann stóð sig vel," sagði Redknapp við opinbera heimasíðu Portsmouth.

,,Við höfum tekið áhættuna með hann og vonandi er hann framtíðarmaður. Við verðum að sjá hvernig honum gengur."

Portsmouth hefur misst John Utaka, Kanu, Sulley Muntari og Papa Bouba Diop á Afríkumótið og Redknapp býst við að kaupa fleiri leikmenn á næstunni.

,,Við verðum að fá menn inn en það er erfitt. Þú lítur í kringum þig og hver er að fara að láta þig fá mann á láni? Eini staðurinn sem þú getur fundið einhverja er erlendis. Við þurfum sérstaklega að styrkja okkur á köntunum og frammi," sagði Redknapp.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.