Fotbolti.net
07.01.09 - 12:28
Magnús Már Einarsson

Guðmundur Óli, Hallgrímur og Sveinbjörn í KA (Staðfest)

Guðmundur Óli og Hallgrímur Mar.

Guðmundur Óli og Hallgrímur Mar.

Canon

Mynd: Hafþór Hreiðarsson

Bræðurnir Guðmundur Óli Steingrímsson, Sveinbjörn Már Steingrímsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson hafa allir gengið til liðs við KA en þeir koma frá Völsungi.
Guðmundur Óli þekkir til hjá KA en þessi 22 ára gamli leikmaður lék með liðinu fyrri hluta síðasta sumars og skoraði þrjú mörk í þrettán leikjum í fyrstu deildinni.

Í júlí gekk hann síðan aftur í raðir Völsungs og skoraði þrjú mörk í sjö leikjum með liðinu í annarri deildinni.

Sveinbjörn Már er tvítugur varnarmaður en hann lék fimmtán leiki í annarri deildinni síðastliðið sumar.

Hallgrímur Mar er átján ára sóknar og miðjumaður en hann skoraði fimm mörk í tuttugu leikjum með Völsungi síðastliðið sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.